Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga hjá Sjálfsbjörg

Almennt 

Vinnsla Sjálfsbjargar á persónuupplýsingum þeirra sem kaupa vörur, og gerast meðlimir í vildarklúbb, í gegnum netverslun samtakanna fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Í tilkynningu þessari má finna upplýsingar sem Sjálfsbjörg ber að veita kaupendum og meðlimum í vildarklúbbnum.

Af hverju vinnur Sjálfsbjörg með persónuupplýsingar kaupenda og meðlima?

Sjálfsbjörg safnar og vinnur með persónuupplýsingar kaupanda í þeim tilgangi að afgreiða pöntun og afhenda vöru á réttum stað á réttum tíma. Unnið er með persónuupplýsingar meðlima í vildarklúbbi í þeim tilgangi að gefa þeim afslátt og senda þeim upplýsingar um vörur og tilboð.

Á hvaða lagagrundvelli vinnur Sjálfsbjörg með persónuupplýsingar kaupenda og meðlima?

Vinnsla á persónuupplýsingum kaupanda er nauðsynleg í þeim tilgangi að efna við hann samning og byggir því á 2. tl. 9. gr. persónuverndarlaga. Einstaklingar hafa val um að gerast meðlimir í vildarklúbbi Sjálfsbjargar og byggir heimild til þeirrar vinnslu því á samþykki þeirra, sbr. 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.

Aðgangur þriðja aðila

Sjálfsbjörg notar upplýsingatæknikerfi sem auðvelda skráningu, utanumhald og miðlun á upplýsingum. Þjónustuaðilar kunna að hafa aðgang að upplýsingum í tengslum við þjónustu þeirra við kerfin. Trúnaðarsamkomulag er gert við viðkomandi sem kveður á um skyldu hans til að gæta fyllsta trúnaðar, tryggja öryggi og fara eingöngu með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli samtakanna.

Hvað geymir Sjálfsbjörg upplýsingar lengi?

Upplýsingar um kaup eru geymd að lágmarki í sjö ár í samræmi við lög nr. 145/1994 um bókhald. Meðlimur er skráður í vildarklúbb þar til hann skráir sig úr honum.

Hver eru réttindi kaupenda og meðlima?

Einstaklingar njóta ákveðinna réttinda samkvæmt persónuverndarlögum, svo sem réttar til að afturkalla samþykki sitt, fá aðgang að gögnum, fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, persónuupplýsingum verði eytt, hindra að unnið verði með persónuupplýsingar, flytja eigin gögn og leggja inn kvörtun hjá Persónuvernd.

Hvert á ég að leita fyrir frekari upplýsingar?

Þú getur haft samband við okkur í gegnum netfangið info@sjalfsbjorg.is ef þú vilt fá frekari upplýsingar um hvernig Sjálfsbjörg meðhöndlar þínar persónuupplýsingar.

Upplýsingar um ábyrgðaraðila

Sjálfsbjörg er í hlutverki ábyrgðaraðila þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga um einstaklinga sem tilkynning þessi tekur til.

Samskiptaupplýsingar ábyrgðaraðila:

  • Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra, kt. 570269-2169
  • Hátúni 12, 105 Reykjavík
  • Símanúmer: 550-0360
  • Netfang: info@sjalfsbjorg.is